|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Nú árið er liðið
þriðjudagur, janúar 3
Nú hafa Hjólamenn hafið annað starfsár sitt og nú þegar sett sitt mark á hjólreiðar á Íslandi. Félagar í Hjólamönnum hafa verið mjög virkir sé tekið mið af smæð félagsins og jafnvel þótt svo sé ekki gert. Þetta er hópur sem hefur gaman af hjólreiðum og ólíkir erum við eins og við erum margir. Flestir erum við með misjöfn markmið, sumir vilja vinna keppnir, aðrir vilja missa kíló og enn aðrir vilja bara stunda útiveru og vera í formi.

Helstu afrek Hjólamanna eru auðvitað þegar Gunnlaugur Jónasson sigraði mjög sannfærandi tvöfaldan sigur á úrtökumóti vegna Smáþjóðaleikanna í Andorra.
Fylkir Keld lenti í fimmta sæti í úrtökumóti á fjallahjóli en í 6 sæti var verðandi Íslandsmeistari í sömu grein. Fylkir var einnig í fyrsta sæti í sínum aldursflokki í 70 km keppni í Bláalónsáskoruninni.
Formaðurinn var líka duglegur að hjóla og var hans besti árangur 3. sæti í hans aldursflokk í 60 km keppni í Bláalónsáskoruninni.

Hjólamenn brydduðu upp á nýjungum strax á fyrsta ári sínu, hafist var handa strax í janúar í fyrra með áramótakeppni Hjólamanna sem haldin var við kjöraðstæður í bílastæðahúsi Kringlunnar og það var fyrir tilstilli hjólamanna að frændur okkar Færeyingar mættu tvívegis hingað til keppni. Hjólamenn hafa ávallt lagt kapp á að hafa gaman af keppnishaldi og innleiddu podium píur og gáfu sigurvegurum sleikjó í verðlaun auk hinna hefðbundnu verðlauna.

Mikið hefur verið rætt um Hjólreiðanefnd ÍSÍ bæði á spjallsíðum og áramótaávarpi. Mér finnst ekki á þessari stundu hægt að gera kröfur á Hjólreiðanefnd ÍSÍ enda starfa þar fáir menn og ekki fullmannaðir þar sem Formaður nefndarinnar hefur tilkynnt það að hann vilji hverfa frá en því miður hefur engin boðið sig fram í hans stað. Jens sem gegndi stöðu ritara hvarf einnig á braut og er hans sárt saknað enda er hann með mikla reynslu á þessu sviði. Á sama tíma keppast menn við að gagnrýna nefndina. Það er ljóst að í stað þess að eyða kröftum í að gagnrýna nefndina þarf að finna henni góðan formann og það sem fyrst.
En að finna góðan formann er ekki barnaleikur og þurfum við því að endurskoða allt ferlið frá grunni. Eitthvað þarf að gera til að gera störf sjálfboðaliða meira eftirsóknarverð, hvort sem um er að ræða brautarverði, dómara, keppnisstjóra nú eða starfsmenn Hjólreiðanefndar ÍSÍ.
Það er þekkt úr öðrum íþróttagreinum að dómarar og fleiri starfsmenn fá greidd laun enda sé um menntaða dómara og viðurkennda af ÍSÍ. Hvort okkar litla samfélag ráði við að greiða laun veit ég ekki en það er samt hlutur sem við verðum að gera ráð fyrir í framtíðinni.

Einnig þarf að fjölga keppendum en þrátt fyrir gríðarlegu sölu reiðhjóla, stóraukna þáttöku í átakinu hjólað í vinnuna og mikil aukning hjólandi fólks almennt hefur það ekki skilað sér í stóraukinni þáttöku í keppnum. Ljóst er að gera þarf keppnir vænni fyrir almenning og lýt ég sérstaklega til reynslu minnar frá Danmörku þar ég tók þátt í vel yfir 1000 manna keppni þar sem boðið var upp á nokkrar vegalendir, allir fengu viðurkenningu að keppni lokinni, og fóru sáttir heim enda búnir að sigra hvernig sem á það er litið. Vikunni áður var önnur jafnstór keppni. Einfaldast væri auðvitað að fara í samstarf með því ágæta fólki í átakinu hjólað í vinnuna. Einnig eru mörg bæjarfélög í grendinni með hlaup og hjólreiðakeppnir á sama tíma og mætti einnig fara í samstarf með þeim.

Ég er sannfærður um að keppnisárið 2006 verið skemmtilegt og vonandi verður aukning á þáttakendum. Við þurfum auðvitað að líta til þeirra keppna sem vel ganga og reyna að nota þær formúlur sem á bak við þær standa. Bláalónskeppnin er sú keppni sem hefur skilað flestum keppendum en tæplega 100 keppendur tóku þátt í fyrra. Bláalónskeppnin, Það myndi minnka vinnu skipuleggjenda ef flestar keppnir ársins hefðu sína föstu dagsetningu, janfvel að aðrir haldi keppnina fyrir okkur eða aðstoði, t.d. bæjarfélag, íþróttafélög eða hjólreiðabúðir þar sem eru nú hæg heimatökinn og mikill viskubrunnur starfsmanna.

kærar áramótakveðjur
Elvar Örn Reynisson

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter