|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Þetta snýst ekki um hjólið
miðvikudagur, janúar 4

"Leið mín aftur til lífsins" er bók um Lance Armstrong og rataði hún í jólapakka til formanns og þrátt fyrir að vera lítill lestrarhundur hafðist það að lesa þessa 269 síðna einstaklega vel skrifaða bók um þennan merka hjólreiðamann. Bókinn hreyf mig svo mikið að eftir að hafa klárað bókina skellti ég henni á náttborðið kveikti á tölvunni og pantaði nokkur armbönd, vatnsbrúsa og húfu til styrktar Livestrong sjóði sem Armstrong stofnaði strax eftir að hafa læknast af krabbameini.

Þó svo bókin sjálf sé frábærlega skrifuð, vel sagt frá og mjög nákvæmlega er þýðingin hinsvegar nokkuð gölluð, nokkrar stafsetningavillur var vart fjótlega í upphafi, Alþjóða Hjólreiðasambandið UCI var allt í einu orðið ICU og Alparnir voru svo erfiðir að það var eins og að hjóla á flatlendi.....
Þarna hefði Helga Soffía Einarsdóttir þurft að fá hjólreiðamann til að lesa yfir handritið.

Bókin er þó skyldulesning fyrir alla hvort sem þeir eru hjólreiðamenn eður ei, því þessi bók snýst ekki um hjólið, hún snýst um leið hans aftur til lífsins.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter