 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
Aðalfundur |
mánudagur, desember 12 |
 |
 |
 |
Aðalfundur Hjólamanna var haldin 3. desember síðastliðin og var stjórnin óbreytt fyrir utan þá breytingu að Friðrik Ottesen hættir sem Ritari enda upptekin við hjólreiðar í fjarlægum löndum. Fylkir Keld Sævarsson var þá kosinn ritari en hefur því miður afþakkað þá stöðu og munum við finna út úr ritaraleysi sem fyrst.
Elvar Örn Reynisson er sem fyrr Formaður og Guðni Dagur verður áfram Gjaldkeri.
Hjólamenn kusu Hjólamann ársins en Friðrik Ottesen var kosinn samróma af öðrum meðlimum enda vel að titlinum kominn þar sem hann hefur verið víðförlastur á hjólinu á árinu og hjólað við misjafnar og á tímum hreinlega hættulegar aðstæður í löndum sem við hin kunnum varla að bera fram.
Boðið var síðan til veislu í Haukahlíðinni þar sem snætt var læri með tilheyrandi og málin rædd fram eftir kveldi.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |