Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Hjolamenn fara víða
fimmtudagur, nóvember 10
Hann Jeffrey sem var hér með okkur síðasta árið við æfingar, er nú horfinn aftur til síns heima og er kominn á fullt í hjólakrossið. Hann keypti sér tvö hjól sem eru sérbúin fyrir kross, sem er einskonar milligrein milli fjalla- og götuhjólreiða. Hann þarf tvö hjól í keppnunum, því hann skiftir um hjól öðru hvoru til að hjálparmenn hans fái tækifæri til að þrífa drulluna af. Þetta er nauðsynlegt því annars verða bremsur og gírar óvirk. Hefur Jeffrey verið að ná mun betri árangri enn fyrir Íslandsdvölina og greinilegt að veðrið og íslenskar aðstæður hafa hert hann. Eins og sjá má keppir hann í búningi Hjólamanna, en Jeffrey hannaði einmitt þann fína galla fyrir okkur.