Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Heras er fallinn !!!
föstudagur, nóvember 25
Fjórfaldur sigurvegari Spænska túrsins, Roberto Heras, féll á lyfjaprófi en niðurstaða úr seinna sýninu var einnig jákvæð. Leyfar af EPO efninu fannst og má búast við því að þetta marki endalok ferils hans en refsingar hafa verið hertar með tilkomu USI stigakeppninnar eða Pro Tour. Heras missir keppnisrétt í 2 ár og má hann ekki taka þátt í USI stigakeppninni í 4 ár. Því má búast við því að Heras sem er 31 árs komi ekki aftur til að sýna hvað hann getur.
Lögmaður Heras, Jose Maria Buxeda sagði fréttamönnum að hann væri hissa á niðurstöðunni en Heras missir titilinn og jafnframt nýtt met sem hann setti þegar hann vann Spænska Túrinn fjórum sinnum nú í haust.
Rússinn Denis Menchov verður því titlaður sigurvegari.