 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
|
 |
Æfingar um þessar mundir |
þriðjudagur, nóvember 1 |
 |
 |
 |
 Mynd: "Nýjasti" fákurinn í stóði Hjólamanna, Moser anno 1990 með föstu drifi.
Á sunnudag fór nokkrir sprækir Hjólamenn frá Sprengisandi, suðurhring um Kársnes, Álftanes, Hafnarfjörð og Heiðmörk í fimbulkulda. Ferðalagið endaði svo á upphafinu við Sprengisand eftir ágætis könnunarleiðangur.
Á þriðjudagsmorguninn kl. 6 voru mættir 4 gallvaskir Hjólamenn og tóku píramídaæfingar í bílahúsi Kringlunnar á göthjólum. Þar var ekki hægt að kvarta yfir veðrinu enda gott skjól í Kringlunni og hluti húsins upphitaður.
Á miðvikudagsmorguninn kl. 6.00 er svo stefnt að fjallahjólaæfingu á stígum borgarinnar. Við hittumst á brúnni yfir Kringlumýrarbraut á Fossvogsstígnum eða þar fyrir vestan. Ef við erum sein erum við venjulegast á róli vestan brúarinnar rétt eftir 6, reyndar er það frekar reglan en hitt. Einn byrjar við Ægisíðu og annar kemur úr Grafarvogi og aðrir þar á milli. Þegar við höfum mæst, oftast vestan brúarinnar, er stefnan venjulega tekin austur á bóginn. Þetta kerfi virkar nokkuð vel, þar sem menn eru oft á nokkuð misjöfnum tíma svona snemma morguns og ekki þarf að bíða eftir neinum.
Við stefnum að halda okkur við þessa áætlun á næstunni, vera í Kringlunni á þriðjudagsmorgnum og á stígunum á miðvikudagsmorgnum. Það er ekkert að því að mæta með fjallahjól í Kringluna, því að einn kosturinn við að hjóla í hringi þar er að ekkert gerir til þó menn séu á misjöfnum hraða; allir geta æft á hraða sem hentar hverjum og einum.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |