Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Æfingar fimmtudag og sunnudag
fimmtudagur, nóvember 17
Á fimmtudag ætlum við að fara skógarhring í Heiðmörk. Æfingin byrjar 19.30 við Sprengisand. Á sunnudag stefnum við að því að kanna stígana með norðurströndinni. Hjóla norður fyrir Mosfellsbæ og etv. eitthvað inn með Esjunni eftir því sem tími og veður leyfa. Sú æfing hefst frá Sprengisandi kl. 09.30 að venju. Það er rétt að benda á að nagladekk eru nauðsynleg á æfingum og ljós á kvöldæfingum um þessar mundir.