|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Umhvefis Helgafell á Reykjanesi.
sunnudagur, október 2
8 manna hópur var mættur á æfingu Hjólamanna í morgun. Allir hjóluðu þeir saman upp Elliðarárdalinn í átt að Heiðmörkinni en þar skiptust leiðir en nokkrir létu stígana í Heiðmörk nægja en 4 Hjólamenn hjóluðu áleiðis í átt að Helgafelli á vit ævintýra og óvæntra uppákoma. Haukur Hjólamaður sýndi okkur hvar hægt væri að ná í vatn nú eða fékk Fylki 400W til að gera það fyrir sig en með því að klöngrast niður sprungu við Búrfellsgjá í Heiðmörk (smelltu til að sjá kort) má fara rúma 5 metra niður í bergið og þar er mjög tært og svalandi vatn að finna.

Hjólað var á hestastígum og ýmsum slóðum frá Búrfellsgjá í átt að Helgafelli og þegar þangað var komið var hjóluð sömuleið og notuð var í erfiðari hluta Bláalónskeppninnar. Tók þar við grýtt leið þar sem ýmist var hjólað á sand eða moldarstígum umhverfis Helgafell. Guðni Páll lenti þá í því að afturskiptirinn rifnaði hreinlega af en Haukur Verkfræðingur sá til þess að Elvar og Fylkir styttu keðjuna og breyttu hjólinu í gamaldags eins gíra hjól.

Sem betur fer voru Ofurhugarnir nú komnir að malbiksenda á Bláfjallaleið og komust allir heilu á höldnu í bæjinn þar sem hjóluð var í átt til Hafnarfjarðar og þaðan sem leið liggur upp í Sundlaugina í Salarhverfinu þar sem slakað var á í heitum potti og talað hátt og snjallt um afrek morgunsins til þess að sem flestir sundlaugargestir frétu örugglega af þessum frækna hjólatúr.

400W klúbburinn vill að lokum bjóða Hauk velkominn í hóp þeirra sem fjárfest hafa í líkamsræktarkorti í hinni glæsilegu Nautilusstöð í Versölum, Kópavogi og ætla þeir kappar að hittast þar kl 18:00 á morgun, mánudag, og eru allir velkomnir. Árskort kostar nú 25,900 kr en flest stéttarfélög endurgreiða frá 10.000,- og allt að 24.000,- kr. Því verður svo flaggað hér á síðunni hvort Haukur sé 400W eður ei.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter