Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Simoni í gulu á næsta keppnistímabili
miðvikudagur, október 26
Gilberto Simoni sem tvívegis hefur sigrað Giro d'Italia eða Ítalska túrinn hefur gengið til liðs við Pro Tour liðið Sanier Duval - Prodir og ætlar sér stóra hluti með liðinu. Hann segist ekki vera að þessu fyrir peningana og segist t.d. hafa hafnað boði frá CSC liðinu þar sem hans hlutverk í liðinu hafi ekki verið nógu skýrt. Saunier Duval - Prodir liðið lenti í 7. sæti í Pro Tour stigakeppninni í fyrra en gamla liðið hans, Lambre, lenti í því 16.
Föstudagurinn er síðasti séns að skrá lið í Pro Tour stigakeppnina og eru nokkrir sterkir hjólreiðamenn enn lausir eftir að Sony-Ericsson liðið datt upp fyrir. ...eurosport.com