|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Æfingar vikunnar.
laugardagur, október 1

Síðastliðinn fimmtudag mættu 5 galvaskir Hjólamenn á skipulagða æfingu en veðurhorfur voru ekki góðar. Á tímabili virtist ætla að byrja að snjóa en úr varð köld rigning sem hörðustu Hjólamenn láta þó ekki á sig fá. Hjóluð var skemmtileg leið um fossvogsdal og síðar upp í salarhverfi í Kópavogi. Þar eru skemmtilegar brekkur sem gera þetta svæði að góðu æfingasvæði. Auk þess er stutt í Salarlaugina að æfingu lokinni fyrir þá sem það vilja. Frikki Hjólamaður mætti ferskur á flottasta hjóli sem til Íslands hefur verið flutt og var að vonum ánægður með gripinn.

Tveir af Wattakóngum Hjólamanna tóku vel á því í gær föstudag í húsakynnum Nautilus þar sem líftími æfingahjólanna var styttur. Wattakóngarnir virða auðvitað hjálmskyldu sem er á æfingum og vekja mikla athygli annara meðlima Nautilus.

Í morgun Hjóluðu 2 ferskir Hjólamenn, þeir Elvar og Haukur, Reykjavíkurhring með lengingu um Gravarvog yfir í Grafarholt og þaðan yfir í Árbæ áður en tengt var aftur við hina hefðbundnu leið um Elliðarárdal. Árni bættist í hópinn á miðri leið og rúllaði með okkur upp í Grafarholt þar sem við skoðuðum möguleikann á því að keppa í skálinni sem umlikur vatnstankana efst á holtinu.

Á morgun Sunnudag verður æfing á Fjallahjólum að venju frá Sprengisandi kl 9:30, veðurspáin er ágæt, en nokkrir ofurhugar ætla sér að hjóla umhverfis Helgafell eða svipaða leið og notuð var í Bláalónskeppninni. Þeir sem vilja hefðbundnari leiðir geta hjólað með okkur áleiðis og látið Heiðmörkina duga. Ég hvet alla til að mæta og nýta haustið til hins ýtrasta áður en vetur konungur lætur almennilega í sér heira.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter