Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Ísland - Færeyjar, Tímakeppni við Bláalónið
sunnudagur, september 4
Eftir erfiða keppni morgunsins var ekkert slegið af enda ekki tilgangurinn með komu Færeyinganna hingað að slappa af. Hafsteinn Ægir Geirsson sigraði 16 km tímakeppnina sem var haldin á veginum við Bláalónið sem liggur framhjá fjallinu Þorbirni. Meiri barátta var hinsvegar á milli Gunnlaugs Jónassonar en mjög mótt var á milli hans og Gunnars Dhal frá Færeyjum og því ljóst að heildarúrslit myndu ráðast í dag. Allt gékk upp hjá Gunnlaugi og kom hann í mark í öðru sæti og 26 sekúndum á undan Gunnari sem var þriðji sem þýðir að Gunnlaugur vann heildarkeppnina. Frábær árangur Íslendinganna í dag tryggði þeim jafnframt sigur Íslands í liðakeppnini.
Eftir keppnina var öllum boðið í Bláalónið og þar gátu menn loksins slakað aðeins á. Um kvöldið bauð svo Hjólamenn öllum þáttakendum og öðrum sem aðstoðuðu við framkvæmd keppninnar upp á pizzur og öl. Spölluðu þar keppendur um keppnina og framtíðarsamband þjóðanna en Íslenskir og Færeyskir hjólreiðamenn hafa undanfarin ár verið duglegir við að sækja hvorn annan heim. Myndir hér og heildarúrslit hér