 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
Ísland-Færeyjar, Nauthólsvík |
föstudagur, september 2 |
 |
 |
 |
Í kvöld var háður fyrsti leggur af fjórum í keppni á milli íslands og Færeyja í Landskeppni á milli eyjanna. 5 Færeyingar tóku þátt en 14 Íslenskir keppendur tóku vel á móti þeim. Keppni kvöldsins var stutt eða 1000m og Sigraði Hafsteinn Ægir með þónokkrum mun en næsti keppandi, Gunnlaugur Jónasson kom í mark 4 sekúndum á eftir. Gunnar Dhal Olsen frá Færeyjum kom svo þriðji í mark rúmri sekúndu á eftir Gunnlaugi.
Veitt voru verðlaun fyrir efstu sætin í hverjum flokki og fengu Hjólamenn góða hjálp með verðlaunaafhendinguna en tvær stúlkur sáu að þessu sinni um að koma verðlaunum til skila. Eftir keppni buðu Hjólamenn keppendum upp á hressingu í formi Capri Sonne ávaxtasafa og Corny orkustanga. Síðan var Færeyingunum boðið upp á alvöru hamborgara á Hamborgarabúllu Tómasar ásamt fylgdarliði. myndir hér og heildarúrslit hér
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |