|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Ísland - Færeyjar, Þingvellir, 68 km
laugardagur, september 3
Gunnar Dahl Olsen frá Færeyjum sigraði í dag 68 km hjólreiðakeppni sem haldin var í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Hjólaðir voru 4 hringir, rétt tæpir 17 km hver, og hélt Gunnar 36,4 km meðalhraða sem er mesti meðalhraði sem hefur náðst í hjólreiðakeppni á íslandi. Gunnlaugur Jónasson kom í mark 12 sekúndubrotum á eftir og Eli Christianssen frá Færeyjum kom þriðji í mark rétt á eftir Gunnlaugi. 16 keppendur voru mættir til leiks og var mikil stemmning meðal þátttakenda. Allir keppendur héldu hópinn á fyrsta hring sem hjólaður var á um 30 mín eða 34,7 km meðalhraða. Strax á öðrum hring byrjuðu keppendur að spretta enn meira og hjóluðu hringin á einungis 25 mínotum. Á þriðja hring byrjaði hópurinn að dreifast þegar fremstu menn gáfu enn meira í og hjóluðu þriðja hring á einungis 23 mínotum. Keppendur fóru heldur rólega í síðasta hring enda ljóst að keppnin myndi enda með endaspretti 6 fremstu keppenda. Keppendurnir 6 fylgdust vel með hverjum öðrum og veltu fyrir sér hvaða herbragð myndi virka á hina 5. Torkil Veyhe frá Færeyjum tók þá af skarið og byrjaði endasprett sem Gunnlaugur og fleiri fylgdu á eftir. Gunnar Dhal fór á hárnákmum tíma af stað í endasprett og sigraði sem áður segir. ...myndir hér og heildarúrslit má finna hér.
Hjólamenn þakka fyrir góða þátttöku og ekki síst veðurguðunum fyrir frábært keppnisveður. Keppt verður á morgun í Hvalfirði við Ristarbrú kl 10:00 þar sem hjólaðir verða um 60 km og vonumst við til að sjá sem flesta. Þá verður 15 km tímakeppni við Bláalónið kl 16:30. Allir keppendur fá frítt í Bláalónið. Um kvöld er svo pizzaveisla í Boði Hjólamanna. Spáð er frábæru veðri á morgun og um að gera að nota tímann áður en Haustið gleipir sólina fyrir veturinn.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter