 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
Millar snýr aftur |
mánudagur, september 26 |
 |
 |
 |
Það lítur út fyrir að Skotinn og Möltubúinn David Millar sem er nú í tveggja ára keppnisbanni fyrir lyfjamisnotkun muni snúa aftur í Túrinn 2006. Ekki í Túr du Ísland eins og sumir labbakútarnir hafa viljað kalla Íslandshjólreiðarnar, heldur hinn eina sanna Túr - Tour de France. Millar sigraði í tímakeppninni á smáþjóðaleikunum 2001 en móðir hans er frá Möltu en faðirinn Skoti. Það lítur út fyrir að Millar muni á næstu dögum skrifa undir samning við spænska liðið Saunier Duval-Prodir. Millar mun þá hjóla á Scott hjóli í Túrnum eins og margir valinkunnir kappar, en hjól af þeirri gerð hafa unnið marga erfiða keppni td. Færeysku hjólreiðarnar - Statoil Kring Föroyar, Íslandshjólreiðarnar, Íslandsmótið í hópstarti og síðast en ekki síst, landskeppnina Ísland-Færeyjar 2005 nú í sumar.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |