Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Íslandsmeistaramít á Götuhjólum, tímakeppni
miðvikudagur, ágúst 10
Íslandsmeistaramót á götuhjólum fór fram miðvikudagskvöldið 10. ágúst. Keppt var í tímakeppni og voru hjólaðir 20,5 km frá Hveragerði í átt til Þorlákshafnar, snúið við og endað aftur við Hveragerði. Hjólamaðurinn Gunnlaugur Jónasson hjólaði hraðast en hann hélt 42,2 km meðalhraða en hann kom í mark á tímanum 29:19:13. Gunnlaugur átti í harðri keppni við Hafsteinn Ægi sem kom 19 sekúndum á eftir í mark. Árni Már Jónsson hafnaði í þriðja sæti á tímanum 30:26:09. Gunnlaugur setti með þessu mesta meðalhraða í tímakeppni sem náðst hefur hérlendis. Nokkrar myndir frá keppninni er hægt að skoða hér