 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
|
 |
Landskeppni Ísland-Færeyjar 2-4 sept. |
miðvikudagur, ágúst 31 |
 |
 |
 |
Um helgina verður háð Landskeppni við Færeyinga, sem koma nú í fjórða sinní heimsókn til okkar. Að þessu sinni ætlum við að hafa fyrirkomulag mótsins líkt því sem var í fyrsta skipti sem þeir komu. Byrja með keppnum sem reyna á sprettinn í mönnum, hafa svo keppni með brekkum og enda á tímakeppni. Glöggir menn sjá eflaust að þetta er sami ?ritminn? og í Túrnum. Við vonumst til að þessi uppbygging verði til þess að úrslitin ráðist ekki strax í fyrstu keppni.
Við ætlum að byrja með spretti við Nauthólsvík á föstudagskvöldið, keppa á Þingvöllum á laugardagsmorgun, í Hvalfirði á sunnudagsmorguninn og enda svo við Bláalónið seinnipartinn á sunnudag. Fara í lónið eftir keppnina og halda svo pizzuveislu fyrir alla sem koma að keppninni og aðstandendur á Hávallagötu 38.
Keppt verður í Opnum flokki og Unglingaflokki 18 ára og yngri. Unglingarnir keppa einnig í Opnum flokki eins og venjulega. Farið verður eftir reglum HJÓL þar sem þær eiga við. Í landskeppninni ræður samanlagður tími tveggja fyrstu frá hvoru landi, úr hverri dagleið.
Föstudagur: Kl. 19.00 Keppni hefst við Nauthól á 1000 m spretttímakeppni, hjólaðir 500 m norður eftir Hlíðarfæti, snúið um keilu og til baka að Nauthól. Eftir keppnina snæða Færeyingar kvöldverð á Hamborgarabúllu Tómasar, ásamt þeim sem vilja. Laugardagur: Kl. 10.00 Keppni hefst á Þingvöllum, 4 hringir réttsælis, 68 km. Eftir keppnina verður farið í skoðunarferð um Þingvelli, Gullfoss og Geysi með Færeyinga. Sunnudagur: Kl. 10.00 Keppni hefst Í Hvalfirði, 15 km spotti hjólaður tvisvar fram og til baka. Samtals 60 km. Byrjað í Kjós um 2-4 km frá ristarbrúnni. Kl. 16.30 16 km tímakeppni hefst við Bláalónið Kl. 17.30 farið í Bláalónið Kl. 20.00 lokahóf hefst
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |