 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
Þriðji Landsvirkjunarbikarinn 11.júlí |
mánudagur, júlí 11 |
 |
 |
 |
Á mánudagskvöldið 11.7.05 kl. 19.00 verður þriðja keppnin í Landsvirkjunar-bikarnum á götuhjólum. Að þessu sinni eru það Hjólamenn sem halda keppnina, sem fer fram á Bláfjallavegi. Ræst verður við Hafnarfjarðarafleggjara og er skráning og skoðun öryggisatriða á staðnum til 18.30. Eftir ræsingu er hjólað upp að skíðaskála Ármanns snúið um keilu og þaðan farið eins og leið liggur niður undir Suðurlandsveg um 10 km. Þar verður líka snúið og hjólað aftur upp að Ármannskála og verður þessi "pulsubraut" endurtekin þrisvar áður en endað er - við Ármannsskála, samtals ca. 63 km. Keppnisgjald er kr. 1000 og verður keppt í öllum flokkum. Eru heiðursmenn boðnir sérstaklega velkomnir en þeir hjóla tvær "pulsur" ca. 43 km.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |