Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Hafsteinn vann Statoil Kring Føroyar 2005
mánudagur, júlí 25
Hafsteinn Ægir Geirsson hafði sigur í Færeyjatúrnum eftir ad koma inn í þridja sæti á fimmtu dagleið, á sama tíma og hans helsti keppinautur, Gunnar Dal Olsen. Bogi Kristiansen vann aftur í dag, enn hann stakk af skömmu áður en komið var í mark frá þeim Hafsteini og Gunnari. Þad gekk mikið á í dag er Gunnar tók hvern sprettinn af öðrum til ad reyna ad sleppa frá Hafsteini og freista þess ad vinna upp forskotið sem Hafsteinn var med eftir fjóra leggi, en allt kom fyrir ekki. Hafsteinn svaraði hverjum spretti Gunnars af öryggi gerði það sem hann þurfti til að hafa sigur samanlagt, enda þótt fjórir dagar af hörku keppni og rúmir 105 km í dag væru farnir að taka sinn toll. Hinir tveir keppendurnir frá Íslandi, þeir Gunnlaugur og Gísli Karel urðu númer sex og sjö í dag og munaði hársbreidd á þeim í endaspretti. Í unglingaflokki sigraði Thorkil Veyhe frá Færeyjum samanlagt.