|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Hjólreiðakeppni í Reykjavík í anda Reykjavíkurmaraþons
fimmtudagur, júní 9
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fluttu tillögu um "Reykjavíkurhjólreiðakeppni" á fundi borgarstjórnar í gær. Á borgarstjórnarfundinum var lagt til að íþrótta- og tómstundaráði verði falið að koma með tillögur um hjólreiðakeppni í Reykjavík í anda Reykjavíkurmaraþons. Ráðið skili inn til borgarráðs fyrir 1. október og fyrsta hjólreiðakeppnin verði haldin þann 18. ágúst 2006 á 220 ára afmæli Reykjavíkur. Tillagan var samþykkt einróma.

Í greinargerð með tillögunni segir:

Reykjavíkurmaraþon er fyrir löngu orðið ómissandi þáttur í borgarlífinu ásamt öðrum hlaupakeppnum. Það er hins vegar ekki nein "Reykjavíkurhjólreiðakeppni" og því tilvalið að koma einni slíkri á laggirnar. Í öðrum löndum er bæði keppt í hefðbundnum götuhjólreiðum og einnig er að ryðja sér til rúms keppni á fjallahjólum í erfiðara landslagi. Hvort tveggja kæmi til greina og eðlilegt að íþrótta- og tómstundaráði verði falið að skoða slíkt og koma fram með hugmynd að framkvæmd.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter