Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
"Hjólað um Ísland"
sunnudagur, júní 26
Keppnin Hjólað um Ísland lauk í dag með sigri Hafsteins Ægis. Landsvirkjun studdi dyggilega við hjólreiðafélögin enda er kjörorð keppninnar "Virkjum eigin orku". Hjólaðir voru 167 km á fjórum dögum. Keppt var á Fjallahjólum í Heiðmörk, á götuhjólum við Sundahöfn og Búrfell. Keppendur komu víða að úr heiminum en stærstur og mjög sterkur hópur kom frá Færeyjum en 5 af þeirra sterkustu keppendum tóku þátt. Einnig voru keppendur frá Bandaríkjum og Danmörku. Keppendum var síðan boðið í grillveislu á Laugardagskvöld og Hjólamenn buðu keppendum upp á Capri-Sonne ávaxtadrykk og Corny orkustangir. Hægt er að skoða myndir frá þessari fjögurra daga keppni með því að smella hér.