|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Hjólað um Ísland
þriðjudagur, júní 21
Þá er komið að keppninni "Hjólað um Ísland". Keppnin byrjar með Jónsmessu áskorun, fjallahjólakeppni á Fimmtudag í Heiðmörk. Keppnin byrjar kl 11:00 við Elliðavatnsbæin og er keppnin um 20 km. Sérstök Krakkakeppni verður á styttri braut sem byrjar kl 21:00.

Á föstudag er svo keppni á malbiki við sundahöfn og hjólaður hringur um klettagarða sem er um 2 km. Hjólaðir verða 20 hringir. Keppnin er kl 19:00.

Á laugardag verður 80 km keppni í Þjórsárdal sem byrjar við Búrfellsstöð, hjólað framhjá Hrauneyjum og svo til baka aftur, niður þjórsárdal og aftur að Búrfellstöð.

Á sunnudag er svo 20 km einstaklingskeppni þar sem keppendur keppa við klukkuna en einn er ræstur í einu og verður sú keppni einnig í Þjórsárdal við Búrfellsstöð.

Keppt verður í heildarkeppni og einnig geta þeir sem vilja tekið þátt einstaka daga.
Keppnisgjald er 1000,- kr per dag en 3000,- fyrir heildarkeppnina. Frítt verður í krakkakeppnina sem haldin verður í Heiðmörk og í Þjórsárdal á laugardag.

Leyfilegt að sleppa 1.legg. Þeir keppendur sem það kjósa fá tíma síðasta manns í fyrsta þriðjungi keppenda, unglinga og meistara, þ.e ef 18 keppendur hefja keppni fær keppandi sem sleppir 1.legg tíma 6 manns. Keppendur sem taka þátt í 1.legg fá ekki lakari tíma en þeir keppendur sem sleppa honum, þ.e ef keppendur eru 18 fá allir sem taka þátt í heildarkeppninni og lenda aftar en 6 sæti, tíma 6 manns.

Verðlaunafé fyrir sigur í ?Hjólað um Ísland? er 70 þúsund krónur fyrir fyrsta sætið í meistaraflokki og 30 þúsund krónur fyrir fyrsta sætið í unglingaflokki.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter