 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
Bláalónsþrautin |
sunnudagur, júní 12 |
 |
 |
 |
Í dag var haldin hjólreiðakeppni þar sem hjólað var frá Hafnarfirði í Bláalónið. Keppnin er styrkt af Landsvirkjun þar sem einkunnar orð keppninnar er "nýtum eigin orku". Keppendur gátu valið um að hjóla 60 km þar sem hjóluð var Djúpavatnsleið yfir í Grindavík og þaðan í Bláalónið eða 70 km leið þar sem mjög erfiðum aukahring var bætt við hina leiðina. Hafsteinn Ægir gerði sér lítið fyrir og hjólaði til sigurs í 70 km keppninni en hann var einungis um 2 og hálfan tíma á leiðinni. Fyrsti maður á 60 km leiðinni var Gísli Ólafs en hann var 2 tíma og 11 mínútur á leiðinni. Um 100 keppendur skráðu sig til leiks og skoluðu af sér ferðarykið í Blálóninu að keppni afstaðinni. Nánari umfjöllun hér og heildarúrslit má finna hér.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |