 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
Landsvirkjunarbikarinn - Virkjum eigin orku |
miðvikudagur, maí 4 |
 |
 |
 |
Í dag var undirritaður samningur á milli Landsvirkjunar og Hjólreiðanefndar ÍSÍ og aðildarfélaga, það er Hjólamenn, Hjólreiðafélag Reykjavíkur og Hjólreiðafélag Akureyrar. Bikarkeppnin sem haldin hefur verið undanfarin ár verður nú Landsvirkjunarbikarinn auk þess sem haldin verður fjögurradaga hjólreiðakeppni daganna 23.-26. júní á Höfuðborgarsvæðinu og við Búrfell.
Það er markmið Landsvirkjunar að starfsemi fyrirtækisins falli sem best að bæði náttúru og samfélagi. Landsvirkjun vill stuðla að útivist og ferðum um landið, ekki síst á virkjunarsvæðum. Átak í að efla áhugann á hjólaíþróttinni fellur vel að því markmiði.
Samstarf hjólreiðanefndar ÍSÍ, hjólreiðafélaganna og Landsvirkjunar er vísir að vori í hjólreiðaíþróttinni, vori sem lýkur með fjölgun iðkenda hjólreiða og blómlegu starfi hjólreiðafélaganna.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |