Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Úrtökumót nr 2, Götuhjól
laugardagur, apríl 30
Gunnlaugur Jónasson í Hjólreiðafélaginu Hjólamenn sigraði úrtökumót á vegum Hjólreiðanefndar ÍSÍ sem fram fór í dag og öðlaðist þar með rétt á sæti á Smáþjóðaleikanna í Andorra. Hafsteinn Ægir kom næstur í mark og Kári Brynjólfsson í því þriðja. Æsispennandi endasprettur var á milli Gunnlaugs og Hafsteins og einnig á milli Kára Brynjólfs og Gíslakarels. Fjórir hjólreiðamenn verða sendir á leikanna sem haldnir verða 30 maí til 5. júní 2005. Hjólaðir voru 72 km frá Nesbúð á Nesjavöllum, um Grafning að gatnmótum Þingvallavegar. Þessi leið var hjóluð þrisvar fram og til baka. Úrtökumót nr 3 verður haldið 8. maí en þá verður keppt í tímakeppni í Mosfellsdal. Skoða myndir hér