Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Paris - Roubaix veðurspá
föstudagur, apríl 8
Eurosport.com notar fyrirsögnina "velkomin til helvítis" en rigning er í kortonum á keppnisleiðinni frá París til Roubaix á Sunnudag. Steinlagðir moldarstígar sem telja 54 km munu reyna á þolrifin hjá 192 keppendum og öruggt að jafnmargir klára ekki keppnina sem er oft kölluð "Helvíti norðursins", hversu fallegt sem það kann að teljast. Þetta er í 103 sinn sem keppnin er haldin og er hún ofarlega á óskalista flestra hjólreiðamanna að vinna en raunin er oft sú að keppendur klára ekki. Í ár er ekki hjólað í gegnum Arenberg skóg vegna mjög slæms ástands stígsins en í staðinn var öðrum slóðum bætt við. Steinlögðu moldarstígarnir eru fleiri í ár en í fyrra, alls 26 sem hlykkjast um norður Evrópu. ...lesa meira á Eurosport.com