Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Landsvirkjunarbikarinn
mánudagur, apríl 25
Hjólreiðafélagið Hjólamenn og Hjólreiðanefnd ÍSÍ halda fjallahjólakeppni í Heiðmörk næstkomandi miðvikudag kl 19:00. Keppnin er fyrsta bikarkeppni sumarsins og jafnframt úrtökumót fyrir Smáþjóðaleikanna í Andorra sem haldnir verða í Maí. Hjólaður verður hringur í Heiðmörk sem byrjar í Furulundi og upp Heiðarveg, inn í skógin og aftur að Furulundi. Hjólað verður í 1 klst og 20 mínotur + einn hring.
Landsvirkjun veitir verðlaunapeninga fyrir þrjú fyrstu sætin í hverjum flokki. Keppt verður í öllum aldursflokkum náist næg þáttaka í hverjum flokki.
Skráning verður á staðnum frá 17:30 og lýkur kl 18:30. Keppnisgjald kr 1.000,- Þar sem stígar eru viðkvæmir í Heiðmörk eru keppendur hvattir til að hjálpa til að keppni lokinni við lagfæringar á stígum.