Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Gent-Wevelgem
fimmtudagur, apríl 7
Fimmta Pro tour keppnin var haldin í Belgíu í gær. Miklir hliðarvindar skiptu hópnum strax á fyrstu kílómetrunum og leiddi 40 manna hópur keppnina sem síðar náði saman þegar vindar breittust. Mikið var um skakkaföll í keppninni en Roger Hammond hjá Discovery Channel liðinu hjólaði á staur og fékk far með sjúkrabíl. Hann verður væntanlega ekki með í keppni helgarinnar frá París-Roubaix. Andreas Klier enn af sigurstranglegri keppendum dagsins lenti í óhappi og óvíst hvort hann taki þátt í næstu keppnum. Þegar 10 km voru eftir að keppninni og stakk Nico Mattan af og Flecha hjá Fassa Bortolo liðinu elti hann uppi. Saman hjóluðu þeir fremstir í nokkra kílómetra þangaði til Flecha stingur af þegar 3 km eru eftir. Nokkuð ljóst var að Flecha myndi sigra sinn fyrsta stóra sigur en Mattan átti eitthvað auka inni og með hjálp mótorhjóla og dómarabíls sem hann skýldi sér á bak við tók hann á rás og sigraði 208 km keppnina og Flecha kom í mark 2 sekúndum á eftir. ...skoða myndir Graham Watson