 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
|
 |
Uci Pro Tour |
miðvikudagur, mars 16 |
 |
 |
 |
Alþjóða Hjólreiðasambandið (UCI) heldur í ár einskonar bikarkeppni atvinnuliða en keppnin kallast UCI pro tour. UCI valdi nokkrar keppnir sem fyrir voru en það sem breytist er að nú eru gefin stig fyrir árangur í hverju móti. Hugmyndin á bak við þetta er að auka áhuga hjá keppendum og liðum og að þau taki þátt í fleiri keppnum. 20 lið fá þáttöku og verða þau að taka þátt í öllum 27 keppnum ársins. Gefin eru stig og keppnir flokkaðar. Tour de France er í flokki A og fær sigurvegari þar 100 stig. Ítalski túrinn og sá Spænski gefa 85 stig hvor. Þær keppnir sem standa yfir í c.a. viku fá 50 stig fyrir sigur og dagleiðir gefa 40 stig. Heimsmeistarakeppni gefur 50 stig Tvær keppnir hafa verið haldnar og eru það Paris-Nice og Tirreno-Adriatico. Oscar Freire sem sigraði Tirrena-Adriatico fékk fyrir það 53 stig. Bobby Julich sem sigraði Paris-Nice er í öðru sæti með 50 stig og Alessandro Petacchi er með 43 stig. ...hægt er að lesa nánar um UCI Tour á eurosport.com.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |