Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Pettacchi sigrar Milan-San Remo.
laugardagur, mars 19
Italski hjólreiðamaðurinn Alessandro Petacchi sigraði loksins keppnina frá Milan til San Remo en þetta er án efa stærsti sigur á hans ferli. Keppnin er ein af þeim sem Petacchi hefur stefnt að lengi og hafði hann sigur úr bítum þrátt fyrir harða og spennandi keppni. Keppnin er gríðarlega erfið eða tæplega 300 km og ein af þeim sem hæfustu hjólreiðamenn heims taka þátt í. Petacchi sigraði keppnina á endaspretti eins og hann er frægur fyrir og háði mikla baráttu við Tom Boonen, Hondo og Erik Zabel sem hefur sigrað keppnina 5 sinnum og Mario Cipollini sem var oft nefndur "sprettkonungur Ítalíu". Það hefur breyst en Alessandro Petacchi hefur sýnt það og sannað að hann eigi þann titil skilið. ...eurosport.com