Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Fabien Cancellara sigrar á endaspretti
fimmtudagur, mars 10
Keppendur fengu betri aðstæður í dag en undanfarna daga, 10°c hiti og sólin skein í fyrsta sinn og gátu keppendur loksins "hjólað í átt til sólu" en nafn keppninnar gefur það einmitt til kynna. Hliðarvindur setti mark sitt á keppnina en þá slitnar oft á milli keppenda og þeir geta ekki skýlt sér eins vel á bak við aðra keppendur. Hópur manna stungu af í lok keppninnar og sigraði Fabien Cancellara á endaspretti en það var Jan Kirsipuu sem veitti honum harðasta keppni í lokinn. Canellara hrifsaði þarmeð til sín gulu treyjuna en hann er núna 31 sekúndu á undan Tom Boonen sem áður klæddist henni og 15 sekúndum á undan næsta manni. ...skoða myndir hjá Graham Watson.