Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Nóg að gera hjá Graham Watson
föstudagur, febrúar 25
Eins og lesendur hafa tekið eftir þá bendi ég oft og iðulega á myndir sem ljósmyndarinn Graham Watson tekur. Heimasíðan hans www.grahamwatson.com er mjög skemmtilega upp sett og uppfærð daglega þegar við á. Um þessar mundir eru nokkrar keppnir í gangi, svo margar reyndar að hann nær ekki að taka myndir af þeim öllum. Nú síðast var það Volta a la Comunitat Valen sem Graham Watson tekur myndir af og birtir á síðu sinni. Þar á undan Volta ao Algarve og Ruta del sol. Flestar þessar keppnir eru notaðar af stjörnunum sem upphitunarkeppnir fyrir sumarið en fyrir aðra minni spámenn til að koma sér og liði sínu á framfæri. Það gerðist einmitt á þriðja legg í Volta a la Comunitat Valen þegar hörðu sprett kallarnir í Fassa Bortolo með Petacchi í fararbroddi misstu tækisfærissinnann Andoni Aragana í 15 mínotna forskot. Fassa Bortolo liðið taldi næsta víst að Andoni myndi þreitast og ekki ná að halda forskoti sínu, en þegar 30 km voru eftir af 151 km dagleið áttuðu menn sig á að það yrði mjótt á munum. Andoni Aragana sigraði dagleiðina og fékk mikið hrós og athygli fyrir nýtt atvinnumanna lið sem hann er í. www.grahamwatson.is