Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Gunnlaugur sigraði naumlega
sunnudagur, febrúar 20
Gunnlaugur Jónasson sigraði Hafstein Ægi með nokkrum sekúndubrotum í tölvumóti Hjólamanna sem haldið var í Laugum í dag. Árni Már Jónsson hafnaði í þriðja aðeins fyrir aftan kappana. 9 manns mættu til keppni og voru allir keppendur viktaðir og hjólin tengd við tölvu. Áhorfendur gátu svo fylgst með árangri hvers og eins á skjá og var keppnin æsispennandi eins og áður sagði á milli Gunnlaugs og Hafþórs. Laugar gáfu þremur efstu aðgang að heilsulind sinni og baðstofu í verðlaun. Allir keppendur fengu orkudrykk frá EAS á meðan á keppni stóð.