 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
|
 |
Æfingar |
föstudagur, febrúar 4 |
 |
 |
 |
Við ætlum að bæta við einni inniæfingu á laugardagsmorgnum kl. 10 í Laugum. Henta sérlega vel fyrir þá sem eru að byrja, jafnt þeim sem eru lengra komnir, því hver hjólar á sínum hraða, Ath, greiða þarf fyrir aðgang að Laugum kr 1.200,- kr. Þessi greiðsla gengur svo upp í kort að Worldclass ef það er keypt síðar svo þetta er alls ekki glatað fé :)
Æfingar okkar Hjólamanna eru þá sem hér segir:
Miðvikudaga kl. 20.40, inniæfing í Spinningsalnum í Laugum
Fimmtudaga kl. 19.00, frá Sprengisandi
Laugardaga kl. 10.00, inniæfing í Spinningsalnum í Laugum
Sunnudaga kl. 9.30, frá Sprengisandi
Svo er að geta þess að við erum búnir að semja um 15% afslátt á Hamborgarbúllu Tómasar svo nú er enginn átæða til að láta ilminn fara í taugarnar á sér þegar maður hjólar framhjá, glorhungraður á þriðja Reykjavíkurhring. Það er einfaldlega bara að stoppa í Búllunni og skella í sig einum stórum. Við tókum prufu á síðustu fimmtudagsæfingu og gafst vel. Sumir fengu meira segja tvöfaldan borgar í staðinn fyrir frönsku kartöflurnar og er þá kominn hinn besti íþróttamatur fullur af kolvetnum og próteini. Svo er meira segja sojaostur á öllum borgurum í þessari Búllu. Ekki verst.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |