Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Áramótakeppni Hjólamanna
sunnudagur, janúar 2
Gunnlaugur Jónasson, hjólreiðafélaginu Hjólamönnum vann fyrstu hjólakeppni ársins sem haldin var í bílastæðahúsi Kringlunnar á tímanum 32 mín og 06sek. Hafsteinn Ægir Geirsson, varð í öðru sæti á 32'31" og Árni Már Jónsson í því þriðja á tímanum 32'42" en þeir eru báðir meðlimir í Hjólreiðafélagi Reykjavíkur. Meðalhraði sigurvegarans Hjólamannsins Gunnlaugs Jónassonar var 32 km/klst.
Hjólreiðafélagið Hjólamenn stóðu fyrir þessari fyrstu hjólreiðakeppni ársins sem haldin var að morgni 2. janúar, þetta var jafnframt fyrsta keppni hins nýstofnaða félags Hjólamanna. Keppt var á götuhjólum og var farinn 750 m hringur á bílastæði Kringlunnar, samtals 23 hringir eða 17 km.
Tveir keppendur helltust úr lestinni annar datt í beygju en slapp ómeiddur og hinn sprengdi dekk. Bílastæði Kringlunnar er einn af fáum stöðum í Reykjavík þar sem hægt er að hjóla á götuhjólum á veturna, tóku forráðamenn Kringlunnar mjög vel í þá beiðni Hjólamanna að fá að halda keppni þar inni. Að lokinni keppni stigu þrír efstu menn á verðlaunapall og fengu medalíur og blómvendi auk veglegra verðlauna sem hjólabúðirnar Markið og GÁP gáfu. Friðrik Ottesen var keppnisstjóri og Elvar Örn Reynisson, formaður Hjólamanna, dómari.