 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
Áramót |
föstudagur, desember 31 |
 |
 |
 |
Hjólamenn fyrirhuga að halda Áramót sunnudaginn 2. janúar klukkan 10.00 í bílastæðahúsi Kringlunnar. Skráning fer fram á staðnum og verður keppnisgjald 1000 kr.
Áætlað start verður fyrir framan Lyf og heilsu á 1. hæð. Hjólaður verður hringur sem samanstendur af 1. hæð bílastæðahússins farið upp á 2. hæð norðurhússins og bílastæði gömlu Borgarkringlunnar. Vegalengd er c.a 750 m. Hjólað verður í 30 mínútur og síðan bætt einum hring við 1. mann.
Bílastæðahúsið verður lokað fyrir umferð á meðan á keppninni stendur, en þó er smá hætta á að bílar sem eru á staðnum fari af stað og þar sem aðstæður eru þröngar á köflum þurfa keppendur að gæta ýtrustu varkárni. Reglur hjólreiðanefndar og alþjóðahólreiðasambandsins gilda eftir því sem við á.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |